gluggþvottur
Fréttir

Sérðu út um gluggann?

Sólin skín á okkur þessa dagana og það er vor í lofti.  Með hækkandi sól og aukinni birtu koma óhreinindi vetrarins betur í ljós. Faglegur og reglulegur gluggaþvottur viðheldur og styrkir góða ímynd fyrirtækja og stofnana, bætir útsýnið og dregur úr skaðlegum áhrifum af völdum veðurs.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

12. apríl 2022

Sólin skín á okkur þessa dagana og það er vor í lofti. Skammdegið er að baki og framundan bjartir sumardagar. Með hækkandi sól og aukinni birtu koma óhreinindi vetrarins betur í ljós og því er það engin tilviljun að margir ákveða að taka til hendinni á þessum árstíma og fara í allsherjar þrif eða vorhreingerningu. Þrif á gleri og gluggum húsa er þar engin undantekning. Faglegur og reglulegur gluggaþvottur viðheldur og styrkir góða ímynd fyrirtækja og stofnana, bætir útsýnið og dregur úr skaðlegum áhrifum af völdum veðurs.

Eitt af því sem nauðsynlegt er að þrífa eftir veturinn eru gluggar húsa. Gluggaþvottur er hluti af eðlilegu viðhaldi fasteigna og hreinir gluggar hleypa birtunni inn sem eykur almennt vellíðan starfsfólks. Þá fegra hreinir gluggar útlit húsa enda eru þeir mikilvægur hluti af ásjónu fyrirtækja að utan sem innan. Vel þrifnir og hreinir gluggar eru jafnframt stór hluti af góðri ímynd fyrirtækja sem skapar aukin viðskipti.

Hreint býður upp á faglegan og reglulegan gluggaþvott fyrir fyrirtækið þitt. Stór hluti viðskiptavina okkar kjósa að hafa gluggaþvott í áskrift. Þannig þurfa viðskiptavinir ekki að huga að því oft á ári hvort nú sé rétti tíminn fyrir gluggaþvottinn. Við aðstoðum þig til að meta þörfina yfir árið og mætum svo eftir samkomulagi.

Hafðu samband við sérfræðinga Hreint og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.