Fréttir

Hvernig á klósettrúllan að snúa?

Við hjá Hreint erum stolt af því að ánægja með þjónustu okkar er gífurlega mikil. Við leggjum metnað okkar í vönduð vinnubrögð og góða framkomu. Eitt verka okkar vekur þó ætíð nokkra umræðu og speglar það umræðuna í þjóðfélaginu.

Hreint ehf.

Hreint ehf.

25. nóvember 2016

Við hjá Hreint erum stolt af því að ánægja með þjónustu okkar er gífurlega mikil. Við leggjum metnað okkar í vönduð vinnubrögð og góða framkomu. Eitt verka okkar vekur þó ætíð nokkra umræðu og speglar það umræðuna í þjóðfélaginu. Hvort á klósettrúllan að snúa fram eða aftur á klósettrúlluhaldaranum?

Nú spyr hugsanlega einhver hvað er fram og aftur á rúllu. Jú, við metum það svo að rúlla snúi fram þegar fremsta blaðið snýr frá veggnum en aftur þegar fremsta blaðið snýr að veggnum. Nú þegar við erum öll á sömu blaðsíðu getum við haldið áfram að vinda ofan af umræðunni.

Sumir vefja sig þeim rökum að í fyrsta einkaleyfinu fyrir klósettrúllur sést að rúllan á að snúa fram. Þeir segjast snýta andstæðingum sínum með rökunum. Þeir sem ekki eru sammála segjast ekki þurfi að fletta neinum blöðum um að oft séu hlutir notaðir öðruvísi en upphaflegi tilgangurinn eða einkaleyfið segir til um.

Svo hafa deilurnar um klósettrúllurnar snúist í marga hringi að gerð hafa verið persónuleikapróf byggð á því hvernig fólk velur að láta rúllurnar snúa. Sagt er að þeir sem velji að láta rúlluna snúa fram séu stjórnsamir, ákveðnir og af manngerð A. Þeir sem láta hana snúa aftur eru undirgefnir, gera málamiðlanir og eru af manngerð B.

Hver er þín skoðun? Hvernig á klósettrúllan að snúa? Við hjá Hreint viljum fá botn í málið í eitt skipti fyrir öll!