Fróðleikur

Þrif í fyrirtækjum – 5 þrifráð fyrir skrifborðið þitt

Byrjaðu daginn með hreint borð

Hreint og vel skipulagt skrifborð eða vinnustöð skiptir meira máli en margir gera sér grein fyrir og sama á við um hreina og vel skipulagða skrifstofu eða vinnustað. Það er staðreynd að hreint og þrifalegt umhverfi eykur framleiðni og gott skipulag minnkar stress. Öll viljum við hafa snyrtilegt í kringum okkur og með útsjónarsemi og skipulagi er það lítið mál, og allt verður svo miklu ánægjulegra.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

13. nóvember 2025

Fimm þrifráð fyrir skrifborðið þitt:

  1. Hafðu aðeins það sem þú þarft. Vertu einungis með nauðsynlega hluti á skrifborðinu og fjarlægðu óþarfa hluti, endurraðaðu og skapaðu gott skipulag. Hafðu gott skipulag á snúrum frá raftækjum, t.d. að binda þær saman þannig að þær flæði ekki yfir allt skrifborðið eða undir því á gólfinu.
  2. Þurrkaðu af raftækjum reglulega. Strjúktu reglulega af raftækjum á skrifborðinu með viðeigandi tusku og hreinsiefnum. Ræstingafyrirtæki þrífa ekki raftæki nema þau séu beðin um það sérstaklega.
  3. Hugsaðu um flokkun. Fjarlægðu ruslafötu frá skrifborðinu og nýttu flokkunarsvæði fyrir þitt rusl. Ekki flokkað? Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar um hvernig best sé að flokka.
  4. Hafðu allt við höndina. Ein tuska og flaska af mildu hreinsiefni í skúffunni gerir gæfumuninn.
  5. Byrjaðu daginn með hreint borð. Endaðu alla daga á að ganga vel frá skrifborðinu þannig að þú komir að því næsta dag hreinu og skipulögðu. Allir hlutir ættu að eiga sinn stað.

Við elskum öll þrif og ræstingar og búum yfir rúmlega 40 ára reynslu í skipulagningu þeirra. Við erum sérfræðingar í að greina og skilgreina þrif- og ræstiþörf í öllum tegundum atvinnuhúsnæðis. Rétt skilgreining og gott skipulag við þrif er grunnurinn að því að geta haldið uppi vönduðu þjónustustigi og á sama tíma stilla kostnaði í hóf. Við erum því öruggur valkostur þeirra sem vilja fagleg vinnubrögð og hagkvæma gæða þrif- og ræstingaþjónustu í verkefni, stór og smá.

Við erum reiðubúið að veita ráðgjöf um bætt þrif fyrir þitt fyrirtæki strax í dag.