Fréttir

Við erum Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2024

Við erum himinlifandi að segja frá því að Hreint hefur verið valið Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2024, samkvæmt Viðskiptablaðinu og Keldunni. Þetta er áttunda árið í röð sem við fáum þessa frábæru viðurkenningu og er hún staðfesting á góðum árangri okkar og frábærri vinnu starfsfólks.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

10. október 2024

Til að komast á þennan eftirsótta lista þurfa fyrirtæki að uppfylla ströng skilyrði, eins og að afkoman sé jákvæð, eiginfjárhlutfall sé yfir 20% og að ársreikningum sé skilað á réttum tíma. Aðeins 3% fyrirtækja á Íslandi ná þessum árangri, og við erum virkilega stolt af því að tilheyra þessum hópi.

Ekki nóg með það! Við höfum einnig verið valið Framúrskarandi fyrirtæki 2024 af Creditinfo, tíunda árið í röð. Aðeins um 2% fyrirtækja á Íslandi ná þeim árangri, sem gerir okkur enn stoltari.

Ef þú vilt vinna með fyrirtæki sem er stöðugt að ná toppárangri, ekki hika við að hafa samband við okkur – við erum hér til að veita þér framúrskarandi þjónustu!