Hreint, jólakaffi
Fréttir

Vel heppnað jólakaffi

Við héldum okkar árlega jólakaffi fyrir starfsfólk síðustu helgi.  Góður hópur fólks mætti með fjölskyldu sinni, nutu veitinga, skreyttu piparkökur og dönsuðu í kringum jólatréið.

 

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

20. desember 2023

Hurðaskellir sjálfur mætti, dansaði og söng, tók svo myndir með börnum og fullorðnum og færði þeim smá glaðning í lokin. Einnig var 15 starfsmönnum færðar starfsaldursviðurkenningar en það er fólk sem hefur starfað í 5, 10, 15 ár eða lengur með okkur.

Að lokum hélt svo hópurinn heim með smá aukaskammt af jólaanda inn í jólahátíðina.