Málsmeðferð

Starfsmönnum Hreint er heimilt að greina frá upplýsingum eða miðla gögnum  til aðila innan fyrirtækisins eða lögregluyfirvalda eða annarra opinberra eftirlitsaðila, um meint lögbrot eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi fyrirtækisins, í þeim tilgangi að látið verði af og/eða brugðist við fyrrnefndri háttsemi.

Upplýsingunum skal komið til framkvæmdastjóra Hreint og skal hann upplýsa starfsmanninum innan 14 daga hvort og hvernig hann hyggst aðhafast vegna upplýsinganna. Hann skal gæta leyndar um persónuupplýsingar sendanda nema honum sé veitt samþykki fyrir því að leynd sé aflétt.

Telji starfsmaður að ekki hafi verið brugðist við með fullnægjandi hætti innan fyrirtækisins, er honum heimilt í góðri trú að miðla upplýsingunum eða gögnum til utanaðkomandi aðila ef hann telur að háttsemin sem um ræðir geti varðað fangelsisrefsingu.

Í algjörum undantekningartilvikum má ganga framhjá framangreindu verklagi og miðla strax til utanaðkomandi aðila. Skilyrði er að mjög brýnir almannahagsmunir séu til staðar sem varða eftirtalin atriði:

  1. Almennt öryggi ríkisins s.s. á sviði varnarmála,
  2. Efnahagslega mikilvæga hagsmuni ríkisins,
  3. Heilsu manna og umhverfsins,

Með innri uppljóstrun er átt við að starfsmaður greinir frá upplýsingum eða miðli gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitenda síns til aðila innan fyrirtækisins eða til opinberrs eftirlitsaðila.

Með ytri uppljóstrun er átt við að starfsmaður greini frá upplýsingum eða miðli gögnum í góðri trú um brot á lögum eða aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi vinnuveitenda síns til aðila utan fyrirtækisins, t.d. fjölmiðla. Ytri uppljóstrun er að jafnaði ekki heimil nema innri uppljóstrun hafi fyrst verið reynd til þrautar.

Með góðri trú er átt við að starfsmaður hafi góða ástæðu til að telja gögnin eða upplýsingarnar sem miðlað er réttar, það sé í þágu almennings að miðla þeim og að hann eigi ekki annan kost til að koma í veg fyrir þau brot eða þá háttsemi sem um ræðir.

Með ámælisverðri háttsemi er átt við hátterni sem stefnir almannahagsmunum í hættu, t.d. hátterni sem ógnar heilsu eða öryggi fólks eða umhverfi, án þess að um sé að ræða augljóst brot á lögum eða reglum.

Starfsmaður í skilningi reglna þessara er sá sem hefur aðgang að upplýsingum eða gögnum um starfsemi vinnuveitanda vegna hlutverks síns. Starfsmaður nýtur verndar samkvæmt ákvæðum laga nr. 40/2020, um vernd uppljóstrara, eftir að hlutverki hans lýkur.

Miðlun upplýsinga eða gagna að fullnægðum skilyrðum ákvæða laga nr. 40/2020, um vernd uppljóstrara, telst ekki brot á þagnar- eða trúnaðarskyldu sem starfsmaðurinn er bundinn af samkvæmt lögum eða með öðrum hætti. Slík miðlun leggur hvorki refsi- né skaðabótaábyrgð á viðkomandi og getur ekki leitt til stjórnsýsluviðurlaga eða íþyngjandi úrræða að starfsmannarétti.

Óheimilt er að láta starfsmann sæta óréttlátri meðferð sem miðlað hefur upplýsingum eða gögnum skv. ákvæðum laga um vernd uppljóstrara. Til slíkrar meðferðar telst t.d. að rýra réttindi, breyta starfsskyldum á íþyngjandi hátt, segja upp samningi, slíta honum eða láta hann  þess á annan hátt. Brot á því getur varðað sektum eða fangelsi allt að tveimur árum.