Undanfarin þrjú ár hefur Hreint verið tilnefnt sem mannauðsfyrirtæki hjá HR Monitor og tekið þátt í verkefnum á borð við Jafnvægisvogina. Jafnframt hefur verið byggt upp markvisst fræðslu- og þjálfunarstarf fyrir starfsfólk. Stuðst hefur verið við reglulegar mælingar varðandi starfsánægju og unnið markvisst úr niðurstöðum til að bæta starfsumhverfið.
Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru veitt árlega stjórnendum sem hafa vakið athygli fyrir störf sín.
Tilnefningin er okkur hjá Hreint afar ánægjuleg. Við erum stolt af Kristínu Dögg og óskum henni til hamingju með þessa tilnefningu.