Fréttir

Tilboð á steinteppahreinsun

Steinteppi er fallegt og endingargott gólfefni sem sameinar eiginleika mjúka gólfefna, eins og teppa, og harðra gólfefna eins og flísa. Þau gefa fallegt samræmt yfirbragð á rými og eru þægileg þar sem starfsfólk er mikið á ferð eða stendur lengi.

Hreint ehf.

Hreint ehf.

4. nóvember 2016

Steinteppi er fallegt og endingargott gólfefni sem sameinar eiginleika mjúka gólfefna, eins og teppa, og harðra gólfefna eins og flísa. Þau gefa fallegt samræmt yfirbragð á rými og eru þægileg þar sem starfsfólk er mikið á ferð eða stendur lengi. Reglulegar ræstingar eru mikilvægar til að gólfefnin haldi sér falleg en einnig er ráðlegt að hreinsa teppin vel að minnsta kosti einu sinni á ári. Nú ber vel í ári því Hreint býður sérstakt tilboð á steinteppahreinsun í nóvember. Viðskiptavinir okkar fá 20% afslátt af hreinsuninni út mánuðinn.

Sérfræðingar Hreint eru snillingar í steinteppahreinsun og hafa þeir áralanga reynslu af slíkum þrifum, tækjabúnaðurinn er fullkominn og vinnubrögðin afbragðsgóð. Það er undravert hve steinteppahreinsunin breytir ásýnd gólfefnisins og veitir ferskara loft á vinnustaðnum.

Hafðu samband við sérfræðinga Hreint og pantaðu steinteppahreinsun á verulega lækkuðu verði í nóvember. Við komum á staðinn, metum ástandið og gerum föst skrifleg tilboð. Athugið að tilboðið gildir einungis fyrir þá sem ekki eru með reglulegan viðhaldssamning.