Fréttir

Stórafmæli Hreint – 30 ára tímamót

Hreint ehf.

Hreint ehf.

12. desember 2013

Hreint á stórafmæli í dag – fimmtudaginn 12. desember 2013 enda eru 30 ár liðin frá því að rekstur þessa ágæta fyrirtækis byrjaði.

Það er eðlilega margs að minnast á þrjátíu árum og margt á dagana drifið. Efst í huga eigenda og stjórnar félagsins er þó fyrst og fremst þakklæti og aftur þakklæti fyrir að hafa eignast viðskiptavini sem hafa viljað skipta við okkur, hafa fengið til liðs við okkur starfsfólk sem hefur skilað farsælu dagsverki og síðast en ekki síst gæfu til að reka fyrirtækið með sómasamlegum hætti.

Tímamótana hefur verið minnst reglulega allt árið 2013. Með starfsfólki var farið í sérstaka afmælisferð, árshátíðin sló metfjölda og viðskiptavinum sem og samstarfsaðilum boðið til stórafmælisveislu í Salnum í Kópavogi.

Það er einlæg von starfsmanna, eigenda og stjórnar Hreint ehf að okkur beri gæfa til þess að eiga áfram í jafn ánægulegum og skemmtilegum samskiptum við viðskiptavini okkar og birgja um ókomin ár, rétt eins og síðustu þrjátíu !

Myndin sýnir þá Ara Þórðarson og Gest Þorsteinsson við “vegginn” sem var útbúinn í tilefni af afmælinu og sýnir sögu Hreint í stuttu máli og myndum.