Fréttir

Núna er góður tími til að endurskoða ræstinguna fyrir haustið

Þegar sumarið stendur sem hæst er skynsamlegt að huga að skotheldri áætlun fyrir hreingerningar, þrif og ræstingar í haust og vetur. Þrifin gera sig ekki sjálf og það þarf útsjónarsemi og gott skipulag til að halda umhverfinu í kringum sig hreinu og þrifalegu.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

12. júní 2025

Með góðu skipulagi, sem inniheldur reglulegar ræstingar, má spara tíma, fyrirhöfn og peninga. Ræstingar eru jú hluti af nauðsynlegu viðhaldi og engum dettur í hug að hægt sé að spara pening með því að sleppa því.

Við hvetjum þig til að skoða hvort núverandi fyrirkomulag ræstinga sé enn að þjóna þínum þörfum eða hvort breytinga sé þörf, t.d. vegna þess að unnið er eftir gömlum samningum sem hafa ekki staðist tímans tönn. Rétt skilgreining og gott skipulag við þrif og ræstingar tryggir ekki aðeins betri þjónustu heldur líka betri yfirsýn og hagkvæmari lausnir og er grunnur að því að halda uppi vönduðu þjónustustigi, á sama tíma og kostnaði er stillt í hóf.

Þú getur treyst því að við leggjum áherslu á fagmennsku, einfaldleika og árangur og erum öruggur valkostur þeirra sem kjósa fagleg vinnubrögð og hagkvæma gæða þrif– og ræstingaþjónustu – í stór sem smá verkefni.

Þegar þú óskar eftir tilboði mætum við á staðinn og metum aðstæður hvernig best er að hátta ræstingunni og gerum með þér skýra, hagkvæma og auðskiljanlega áætlun sem einfaldar þér lífið. Gerist ekki einfaldara!

Við erum til þjónustu reiðubúið að veita ráðgjöf um bætt þrif fyrir þitt fyrirtæki strax í dag!