Fréttir

Leitaðu tilboða í ræstingarnar

Haustið nálgast nú óðfluga, skólarnir allir að hefjast og lífið fer að fara í sínar hefðbundu skorður. Það er að mörgu að hyggja á haustin og eitt af því er hvernig ræstingamálum fyrirtækisins á að vera háttað.

Hreint ehf.

Hreint ehf.

26. ágúst 2016

Haustið nálgast nú óðfluga, skólarnir allir að hefjast og lífið fer að fara í sínar hefðbundu skorður. Það er að mörgu að hyggja á haustin og eitt af því er hvernig ræstingamálum fyrirtækisins á að vera háttað.

Við hjá Hreint mælum með því að þú leitir tilboða hjá okkur í ræstingar fyrirtækisins. Við erum er eitt elsta og stærsta fyrirtæki á sviði ræstinga á Íslandi og höfum verið Svansvottuð síðan 2010.

Hátt gæðastig næst með góðu skipulagi og úttektum. Þegar fyrirtæki koma í viðskipti við okkur skilgreinum við þörfina en með því er mögulegt að halda uppi vönduðu þjónustustigi ásamt því að lækka kostnað. Framkvæmd er nákvæm úttekt og greining á ræstiþörfum hvers atvinnuhúsnæðis en þessi úttekt er lykillinn að hagstæðri ræstingu.

Við hjá Hreint vitum að ræstingar eru heilbrigðismál. Ef vinnustaðurinn er ekki ræstur sem skildi eykst hættan á smiti milli starfsmanna. Reglulegar rætingar draga úr sýklaflórunni á vinnustaðnum. Við hjá Hreint bjóðum alhliða ræstiþjónustu sem eykur vellíðan á vinnustað, minnkar viðhald og eykur heilbrigði.

Sérfræðingar Hreint hafa búnaðinn, reynsluna og fagþekkinguna til að takast á við krefjandi verkefni. Ekkert verkefni er of stórt fyrir okkur og ekkert er of smátt. Sérgrein okkar er heildarumsjón ræstinga og þrotlaus vinna við gæðastefnu okkar, þróun nýrra lausna og símenntun skilar sér í bestu hugsanlegu gæðum fyrir viðskiptavini okkar.

Hafðu samband við sérfræðinga Hreint og sjáðu hvað við getum gert fyrir þig.