Fréttir

Laus störf við ræstingar á höfuðborgarsvæðinu / Available jobs in cleaning in the Greater Reykjavik area

Hreint ehf. leitar að starfsmönnum í ræstingar á höfuðborgarsvæðinu. Um fullt framtíðarstarf er að ræða þar sem unnið er ýmist frá 8–16,  8:30–16:30 eða 9-17 alla virka daga. Um 2-3 stöður er að ræða og þurfa viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst.

Hreint ehf.

Hreint ehf.

26. júlí 2018

Hreint ehf. leitar að starfsmönnum í ræstingar á höfuðborgarsvæðinu. Um fullt framtíðarstarf er að ræða þar sem unnið er ýmist frá 8–16,  8:30–16:30 eða 9-17 alla virka daga. Um 2-3 stöður er að ræða og þurfa viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Unnið er í tveggja manna teymum og eru verkefnin misjöfn frá degi til dags.

Umsækjendur verða að uppfylla kröfur um:

  • Hreint sakavottorð
  • Gilt ökuskírteini
  • Hafa náð 18 ára aldri.

Aðrir þættir sem litið er til við ráðningu:

  • Kunnátta í íslensku og/eða ensku er mikilvæg.
  • Reynsla af ræstingum í fyrirtækjum er mikill kostur.
  • Góð líkamleg heilsa
  • Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
  • Færni i mannlegum samskiptum
  • Sjálfstæð vinnubrögð

Nánari upplýsingar um störfin veitir Sylvía Guðmundsdóttir í síma 822-1872 eða sylvia@hreint.is. Sótt er um starfið á heimasíðu okkar http://atvinna.hreint  Æskilegt er að ferilskrá fylgi umsókn. Vel útfylltar umsóknir auka líkur á ráðningu.

Hreint ehf. var stofnað 12.desember 1983 og er ein elsta ræstingaþjónusta landsins. Í júní 2010 hlaut fyrirtækið vottun  með norræna gæða- og umhverfismerkinu Svaninum. Gildi Hreint eru samvinna, traust, frumkvæði og fyrirmynd.

Hreint stendur vel að nýliðaþjálfun og fræðslu. Við höfum virkt og skemmtilegt starfsmannafélag auk þess sem við veljum starfsmenn mánaðarins og starfsmann ársins. Við leggjum áherslu á jafnrétti og höfum skýra stefnu gegn einelti og kynferðislegri áreitni.


We are looking for employees to clean in the Reykjavik area. It´s a full-time job on a permanent basis. Working hours are 8-16, 8:30-16:30 or 9-17 Monday through Friday. We are looking for 2-3 employees who can start right away or very soon. The work is done in a 2 people team and differs from day to day.

Applicants must:

  • Have and be able to provide a clean criminal record
  • Have a valid driving license
  • Be of 18 years or older
  • Have an Icelandic id no. (Kennitala)

Other qualities we look for when hiring for this job:

  • Knowledge in Icelandic and/or English is preferred
  • Experience in company cleaning is valuable
  • Good physical health
  • Flexibility and positivity
  • Great communication skills
  • Able to show initiative

For further information please contact Sylvía Guðmundsdóttir by phone 822-1872 or by email sylvia@hreint.is. To apply, please go to our website job.hreint.is  We do prefer that you include a CV with the application. Properly filled out applications increase the chance of getting hired.

Hreint ehf. was founded in 1983 and is one of the oldest cleaning service company in Iceland. In June 2010 the company was awarded with the official Nordic quality and environmental ecolabel, the Swan (Svanurinn).

We welcome our new staff with good training and education. We have an active employees’ association that organizes a variety of events. We acknowledge our staff by choosing employee of the month and of the year. We underline equal rights and have a strict policy on anti-bullying and sexual harassment.