Fréttir

Láta af störfum eftir áratuga starf

Gestur Þorsteinsson og Marteinn Jónsson hafa látið af störfum hjá Hreint.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

1. október 2020

Um mánaðamótin urðu tímamóti í sögu Hreint þegar Gestur Þorsteinsson og Marteinn Jónsson luku starfsævi sinni hjá fyrirtækinu. Gestur gerðist meðeigandi að Hreint og hóf þar störf árið 1984 eða fljótlega eftir stofnun þess árið 1983. Marteinn hóf störf stuttu eftir það. Hver á sínu sviði hafa þeir átt farsælan feril, reynst fyrirtækinu vel og þjónað viðskiptavinum þess af fagmennsku og alúð enda miklir fagmenn. Gestir hefur auk þess tekið þátt í að byggja upp eitt öflugasta ræstingafyrirtæki landsins sem Hreint er.

Við þökkum þeim fyrir vel unnin störf og frábært samstarf og óskum þeim velfarnaðar í framtíðinni.