Hreint hefur verið Svansvottað á sviði reglulegra ræstinga frá árinu 2010. Fyrir okkur er Svanurinn ekki aðeins merki á blaði heldur hluti af því hvernig við skipuleggjum og framkvæmum þjónustuna okkar.
Svansvottun gerir strangar kröfur til ræstingaþjónustu. Markmiðið er að draga úr umhverfisáhrifum án þess að gefa eftir í gæðum.
Kröfurnar ná meðal annars til efnanotkunar og umhverfismerktra ræstiefna, samgangna, úrgangsflokkunar, þjálfunar starfsfólks, gæðastjórnunar og launa og starfskjara. Þannig þarf Svansvottuð ræstingaþjónusta að uppfylla skýr viðmið um bæði framkvæmd þjónustunnar og umhverfisáhrif hennar.
En hvers vegna skiptir þetta viðskiptavini máli?
Þegar fyrirtæki velur Svansvottaða ræstiþjónustu þarf það ekki sjálft að leggja mat á hvert hreinsiefni, aðferð eða umhverfisþátt. Óháð vottun og skýr viðmið liggja að baki þjónustunni.
Þannig verður auðveldara að taka upplýsta ákvörðun um ræstingar sem sameina gæði, heilsu, umhverfissjónarmið og faglega framkvæmd.
Hjá Hreint höfum við lengi lagt áherslu á snjallari og umhverfisvænni ræstingar sem stuðla bæði að bættu hreinlæti og hagkvæmari rekstri. Það fellur vel að þeirri áherslu vörumerkisins að stuðla að bættu hreinlæti fyrir fyrirtækin og fólkið í landinu.
Svansdagar eru góð áminning um að litlar ákvarðanir í daglegum rekstri geta haft áhrif.