Hreint afhendir AHC samtökunum styrk
Fréttir

Hreint styrkir AHC samtökin

Undanfarin ellefu ár hefur Hreint haldið golfmót fyrir viðskiptavini sína, birgja og velunnara.

Mótið í sumar fór fram á Urriðavelli, í blíðskaparveðri í byrjun júní, og var vel sótt að venju. Keppnin var skemmtileg og spennandi frá upphafi til enda en að lokum stóð Etna Sigurðardóttir uppi sem sigurvegari. Skapast hefur sú hefð að aðalverðlaun mótsins er styrkur til góðgerðarmálefnis sem sigurvegarinn velur og nemur fjárhæðin 150.000 krónum.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

1. júlí 2022

Etna valdi að styrktarféð rynni til AHC samtakanna, sem er góðgerðarfélag með þann tilgang að fræða almenning og heilbrigðisstarfsfólk um AHC og styrkja rannsóknir á Alternating Hemiplegia of Childhood. Líkurnar á að greinast með AHC, sem er talinn vera flóknasti taugasjúkdómur sem vita er um, eru 1 á móti 1.000.000 en aðeins hafa greinst 850 einstaklingar í heiminum. Á Íslandi hefur einn einstaklingur greinst með AHC en það er Sunna Valdís Sigurðardóttir.

Hluti af samfélagsábyrgð Hreint

Ari Þórðarson, framkvæmdastjóri Hreint, segir að fyrirtækið vilji láta gott af sér leiða með þessum hætti enda taki það samfélagábyrgð sína alvarlega. Hann segir að þetta sé sjöunda árið í röð sem verðlaun mótsins renni til góðgerðarmála og sé það alltaf jafnánægjulegt að styrkja góð málefni.

Sigurður Hólmar Jóhannesson og Sunna Valdís tóku nýverið á móti Ara og Etnu og veitti styrknum frá Hreint viðtöku. Þökkuðu þau kærlega fyrir hlýjan hug til AHC samtakanna og sögðu að styrkurinn myndi nýtast vel.

Á myndinni eru Etna Sigurðardóttir, Sigurður Hólmar Jóhannesson, Sunna Valdís Sigurðardóttir og Ari Þórðarson.