Hjálparsveit skáta í Kópavogi hefur starfað frá árinu 1969 og byggir starfsemi sína á öflugu sjálfboðaliðastarfi. Félagar sveitarinnar sinna fjölbreyttum verkefnum við leit, björgun og aðstoð þegar mannslíf eða verðmæti eru í hættu.
Sala Neyðarkallsins er ein af mikilvægum fjáröflunarleiðum sveitarinnar og stuðlar að því að hún geti haldið úti öflugu björgunarstarfi.
Hjá Hreint leggjum við áherslu á að styðja við þau fjölmörgu félög og samtök sem leggja sitt af mörkum til samfélagsins. Björgunarsveitirnar gegna þar mikilvægu hlutverki og það er okkur ánægja að geta stutt við óeigingjarnt starf sjálfboðaliðanna.
Við þökkum Hjálparsveit skáta í Kópavogi fyrir þeirra mikilvæga framlag og óskum þeim velfarnaðar í störfum sínum.