Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum sem uppfylla ströng skilyrði HR Monitor um reglulegar mannauðsmælingar, miðlun niðurstaðna til starfsfólks og markvissa eftirfylgni stjórnenda.
Til að hljóta viðurkenninguna þurfa fyrirtæki meðal annars að framkvæma mannauðsmælingar meðal alls starfsfólks að lágmarki fjórum sinnum á ári, upplýsa reglulega um niðurstöðurnar og tryggja að stjórnendur hafi yfirsýn yfir stöðu og þróun sinna teyma.
Við hlustum til að gera betur
Hjá Hreint eru reglulegar mannauðsmælingar mikilvægur hluti af því að byggja upp góðan vinnustað.
Með HR Monitor fáum við verðmæta innsýn í líðan starfsfólks, starfsanda, stjórnun og tækifæri til starfsþróunar. Niðurstöðurnar hjálpa okkur að greina hvað gengur vel og hvar við getum gert betur.
Við leggjum áherslu á að niðurstöðurnar nýtist í daglegri stjórnun og að starfsfólk sjái að ábendingar þess og upplifun skipti máli.
Það er ekki nóg að spyrja hvernig fólki líður. Við þurfum líka að hlusta og bregðast við.
Starfsfólkið er okkar mesti styrkur
Á bak við þjónustu Hreint stendur fjölbreyttur hópur starfsfólks sem leggur sig fram á hverjum degi. Þekking þess, reynsla og metnaður eru grunnurinn að þeirri þjónustu sem við veitum viðskiptavinum okkar.
Viðurkenning HR Monitor er okkur því bæði ánægjuleg staðfesting á þeirri vinnu sem hefur verið unnin og hvatning til að halda áfram að þróa vinnustaðinn.
Við erum stolt af starfsfólkinu okkar og þakklát fyrir þátttöku þess, hreinskilna endurgjöf og framlag til þess að gera Hreint að enn betri vinnustað.