Hreint er jafnlaunavottað fyrirtæki árið 2021
Fréttir

Hreint hlýtur jafnlaunavottun

Hreint hefur hlotið jafnlaunavottun en meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

7. október 2021

 

Hreint hefur hlotið jafnlaunavottun sem er staðfesting á því að launakerfi fyrirtækisins samræmist kröfum jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði.

Jafnlaunakerfi Hreint er ætlað að stuðla að því að starfsfólk sem vinnur sömu eða jafnverðmæt störf fái jöfn laun og að ákvarðanir í launamálum séu málefnalegar og feli ekki í sér mismunun.

„Við erum mjög stolt af þessum áfanga og þetta er stór hluti af því að vera samfélagslega ábyrgt fyrirtæki. Að baki vottuninni liggur mikil vinna sem margir hafa komið að til að byggja upp traust jafnlaunakerfi, enda jafnrétti kynjanna mikilvægt málefni,“ segir Ari Þórðarson, framkvæmdastjóri Hreint.