Fréttir

Hreint hélt hreinu á Laugardagsvelli

Samheldinn hópur framúrskarandi starfsfólks Hreint sá um að halda Laugardalsvelli hreinum í síðustu tveimur landsleikjum íslenska landsliðsins í knattspyrnu

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

30. júní 2023

Öll höfum við væntingar um góðan árangur og helst sigur í hverjum leik hjá strákunum okkar. Að sama skapi er gerð krafa um að umgjörð landsleikja sé fagleg, örugg og skapi góða stemningu.

Hlutu af faglegri framkvæmd landsleikja er að þrif og hreinlæti sé í topplagi. Við hjá Hreint höfum 40 ára reynslu í að skipuleggja þrif og ræstingar í öllum tegundum húsnæðis og þar eru íþróttamannvirki ekki undanskilin. Hreint er öruggur valkostur þeirra sem vilja fagleg vinnubrögð og hagkvæma gæða þrif- og ræstingaþjónustu í verkefni, stór og smá.

Starfsfólk Hreint er til þjónustu reiðubúið að veita ráðgjöf um bætt þrif fyrir þitt fyrirtæki strax í dag.