Við hljótum þessa viðurkenningu fyrir að framkvæma reglulega mannauðsmælingar á meðal alls starfsfólks okkar þar sem við upplýsum það svo um niðurstöðurnar og árangurinn. Einnig veitum við stjórnendum okkar yfirsýn yfir árangur sinna sviða, deilda og hópa. Með þessu móti sýnum við í verki að mannauður okkar skiptir miklu máli.
Í HR monitor er spurt út í líðan á vinnustað og ánægju með stjórnun, starfsanda, starfsþróun og fleira sem viðkemur mannauðsmálum. Allt starfsfólk fær tækifæri til að gefa yfirmanni sínum mánaðarlega endurgjöf, bæði á frammistöðu hans sem stjórnanda sem og á starfsumhverfi og starfsánægju. Stjórnendur fá jafnframt dýrmæta endurgjöf á sín störf sem þeir nýta til að dýpka sjálfsþekkingu sína og gera enn betur í starfi sínu sem leiðtogar. Við hlustum líka á tillögur frá starfsfólki til að gera betur og göngum í málin ef þurfa þykir.
Á bakvið Hreint er öflugt og samheldið teymi starfsfólks sem við erum stolt af.