Hreint ehf - Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri
Fréttir

Hreint er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2021

Fimm ár í röð hefur Hreint hlotið viðurkenninguna um Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

29. september 2021

Hreint er fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2021 samkvæmt skilgreiningu Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Við erum sérlega stolt af því að hljóta þessa viðurkenningu, fimmta árið í röð, en hún staðfestir fyrirmyndarrekstur Hreint og góða vinnu starfsfólks.

Til að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þarf að uppfylla ýmis ströng skilyrði, s.s. að afkoman sé jákvæð, eiginfjárhlutfall sé umfram 20% og að ársreikningi sé skilað á réttum tíma. Aðeins 3% fyrirtækja á Íslandi eru Fyrirmyndarfyrirtæki samkvæmt skilyrðunum.

Hreint hefur boðið ræstingar og þrif frá því 1983 og hefur frá upphafi lagt sig fram í að vera sérfræðingar í hreinlæti, viðhalda góðum samskiptum við starfsfólk og viðskiptavini og geta mætt þörfum atvinnulífsins hverju sinni.

Hafðu samband við sérfræðinga okkar og komdu í viðskipti við fyrirmyndarfyrirtæki.