Fyrirmyndarfyrirtæki í resktri 2017-2020
Fréttir

Hreint er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2020

Við erum í hóp 3% fyrirtækja á Íslandi sem hljóta þessa viðurkenningu skv. skilgreiningu Viðskiptablaðsins og Keldunnar.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

16. október 2020

Hreint er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri árið 2020 samkvæmt skilgreiningu Viðskiptablaðsins og Keldunnar. Við erum afar stolt af því að hljóta þessa viðurkenninguna, fjórða árið í röð, en hún staðfestir fyrirmyndarrekstur Hreint og góða vinnu starfsfólks.

Til að komast á lista Viðskiptablaðsins og Keldunnar yfir Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri þarf að uppfylla ýmis ströng skilyrði, s.s. að afkoman sé jákvæð, eiginfjárhlutfall sé umfram 20% og að ársreikningi sé skilað á réttum tíma. Aðeins 3% fyrirtækja á Íslandi eru Fyrirmyndarfyrirtæki samkvæmt skilyrðunum.

Hreint er einnig Framúrskarandi fyrirtæki 2020 samkvæmt skilgreiningu Creditinfo, sjötta árið í röð en aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi hlutu viðurkenninguna nýverið.

Hafðu samband við sérfræðinga okkar ef þú vilt vera í samskiptum og viðskiptum við framúrskarandi fyrirmyndarfyrirtæki.