Fréttir

Hreint er framúrskarandi tólfta árið í röð!

Við hjá Hreint höfum enn á ný hlotið viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki í rekstri árið 2026. Þetta er tólfta árið í röð sem við hljótum viðurkenninguna og við erum að vonum stolt af árangrinum!
Helga Hrönn Jónasdóttir tók við viðurkenningunni fyrir hönd okkar við hátíðlega athöfn Creditinfo.

 

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

29. október 2026

Helga Hrönn Jónasdóttir með viðurkenningu Creditinfo fyrir Hreint sem Framúrskarandi fyrirtæki 2026.

Aðeins 2% íslenskra fyrirtækja uppfylla þau ströngu skilyrði sem Creditinfo gerir til Framúrskarandi fyrirtækja. Við matið er meðal annars horft til rekstrarafkomu, fjárhagslegs styrks, stöðugleika og skilvísi í rekstri yfir þriggja ára tímabil.

Kröfurnar hafa auk þess verið hertar í ár, meðal annars með nýjum skilyrðum um kynjahlutföll í stjórnum þeirra fyrirtækja sem falla undir lög um kynjakvóta.

 

Góður rekstur er langhlaup

Að hljóta þessa viðurkenningu einu sinni er ánægjulegt, en að gera það tólf ár í röð er eitthvað sem við erum sérstaklega stolt af. Árangurinn endurspeglar þá áherslu sem við leggjum á traustan rekstur, góða þjónustu og langtímasambönd við viðskiptavini okkar.

Viðurkenningin er jafnframt mikilvæg staðfesting á þeirri vinnu sem starfsfólk Hreint leggur af mörkum á hverjum degi. Það er ekki sjálfgefið að halda góðum árangri ár eftir ár og fyrir það erum við þakklát.

Við þökkum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og samstarfsaðilum kærlega fyrir þeirra þátt í þessum árangri. Við höldum ótrauð áfram!

 

Nánar um Framúrskarandi fyrirtæki og skilyrði Creditinfo