Hreint er í úrvalsliði þeirra sem standast kröfur Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2023 og hefur fengið viðurkenningu þess efnis. Það er okkur hjá Hreint mikill heiður að hljóta viðurkenninguna, níunda árið í röð. Hún staðfestir góðan árangur fyrirtækisins og frábæra vinnu starfsfólks.
Í 14 ár hefur Creditinfo mælt heilbrigði íslenskra fyrirtækja þegar kemur að lykiltölum í rekstri. Að jafnaði standast aðeins um 2% fyrirtækja þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi fyrirtækja sem þýðir að þau eru komin í úrvalshóp. Árangurinn er mikilvægur fyrir fyrirtækin sjálf og hagkerfið í heild. Traust fyrirtæki eru grunnurinn að hraustu samfélagi.
Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?
Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem skoða má hér.
Vertu í viðskiptum við framúrskarandi fyrirtæki
Það er sérlega ánægjulegt að Hreint uppfyllir öll skilyrðin og er á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2023. Það er okkar markmið að gera betur á allan hátt, hvort sem það er í þjónustu og samskiptum við okkar viðskiptavini, samskiptum við okkar frábæra starfsfólk, eða með hagkvæmum rekstri fyrirtækisins. Við erum staðráðin í að halda áfram á sömu braut.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar og komdu í viðskipti við framúrskarandi fyrirtæki.