Fréttir

Hreint er Framúrskarandi fyrirtæki 2022

Áttunda árið í röð fær Hreint viðurkenningu fyrir að vera Framúrskarandi fyrirtæki

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

29. september 2022

Það er okkur mikill heiður að vera í úrvalsliði þeirra fyrirtækja sem standast strangar kröfur Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2022. Við hljótum þessa viðurkenningu nú áttunda árið í röð og staðfestir hún góðan rekstrarárangur Hreint og frábæra vinnu starfsfólks.

Í 13 ár hefur Creditinfo mælt heilbrigði íslenskra fyrirtækja þegar kemur að lykiltölum í rekstri. Að jafnaði standast aðeins 2% fyrirtækja þær ströngu kröfur sem gerðar eru til Framúrskarandi fyrirtækja sem þýðir að þau eru komin í úrvalshóp. Árangurinn er mikilvægur fyrir fyrirtækin sjálf og hagkerfið í heild. Traust fyrirtæki eru grunnurinn að hraustu samfélagi.

Hvað gerir fyrirtæki framúrskarandi?

Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem skoða má hér.

Vertu í viðskiptum við framúrskarandi fyrirtæki

Það er sérlega ánægjulegt að Hreint uppfylli öll skilyrðin og sé á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2022. Það er okkar markmið að gera betur á allan hátt, hvort sem það er í þjónustu og samskiptum við okkar viðskiptavini, samskiptum við okkar frábæra starfsfólk, eða með hagkvæmum rekstri fyrirtækisins. Við erum staðráðin í að halda áfram á sömu braut.

Hafðu samband við sérfræðinga okkar og komdu í viðskipti við framúrskarandi fyrirtæki.