Fréttir

Hreint er Framúrskarandi fyrirtæki 2018

Við hjá Hreint eru stolt af því að vera á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2018. Þetta er fjórða árið í röð sem Hreint hlýtur viðurkenninguna, sem aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi hljóta.

Hreint ehf.

Hreint ehf.

15. nóvember 2018

Við hjá Hreint eru stolt af því að vera á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2018. Þetta er fjórða árið í röð sem Hreint hlýtur viðurkenninguna, sem aðeins 2% fyrirtækja á Íslandi hljóta. Hún er staðfesting á góðum árangri fyrirtækisins og frábæru starfi starfsfólks.

Í ár skipa 857 fyrirtæki lista Creditinfo yfir framúrskarandi fyrirtæki og byggist hann á rekstri og fjárhagsstöðu fyrirtækjanna á árinu 2017. Þetta er áttunda árið í röð sem Creditinfo tekur saman listann en fyrirtækin þurfa að uppfylla fjölmörg skilyrði til að fá að bera þennan eftirsótta titil.

Verðmæt fyrirtæki
Þau fyrirtæki sem komast á lista Creditinfo sýna stöðugleika í rekstri og skapa þannig verðmæti og störf. Þau standa á traustum stoðum og eru því jafnframt ekki líkleg til að valda samfélaginu kostnaði. Til að komast á listann þarf að uppfylla ýmis skilyrði, m.a. að hafa skilað ársreikningi til RSK síðastliðin þrjú ár, líkur á alvarlegum vanskilum séu undir 0,5% og að rekstrarhagnaður hafi verið jákvæður þrjú ár í röð. Þá þarf eiginfjárhlutfallið að hafa verið 20% eða meira og eignir 90 milljónir eða meira að meðaltali þrjú rekstrarár í röð.

Gerum betur
Það er ánægjuefni að Hreint uppfylli öll þessi skilyrði og sé á lista Creditinfo yfir Framúrskarandi fyrirtæki 2018. Það er okkar markmið að gera betur á allan hátt, hvort sem það er í þjónustu og samskiptum við okkar viðskiptavini, samskiptum við okkar frábæra starfsfólk, eða með hagkvæmum rekstri fyrirtækisins. Við erum staðráðin í að halda áfram á sömu braut.

Hafðu samband við sérfræðinga okkar ef þú vilt vera í samskiptum og viðskiptum við framúrskarandi fyrirtæki.