Fréttir

Hreint endurnýjar Svansvottunina

Hreint hefur lokið við endurvottun Svansins. Þetta er mikilvæg staðfesting á því að umhverfisábyrgð, gæði og fagleg vinnubrögð eru áfram hluti af okkar daglega rekstri.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

18. júní 2026

Hreint hlaut fyrst Svansvottun árið 2010 og hefur síðan þá unnið markvisst að því að uppfylla strangar kröfur Svansins um umhverfisvæna ræstingaþjónustu. Frá þeim tíma hafa kröfur Svansins þróast og orðið umfangsmeiri, sem gerir endurvottunina enn verðmætari staðfestingu á markvissri vinnu okkar í umhverfis- og gæðamálum. Vottunin nær meðal annars til ábyrgra innkaupa, lágmörkunar á efnanotkun, aukinnar notkunar umhverfismerktra vara, fræðslu starfsfólks og stöðugrar eftirfylgni á gæðum.

Endurvottunin er því ekki aðeins viðurkenning á því sem hefur áunnist, heldur hvatning til að halda áfram að þróa þjónustu okkar í átt að enn sjálfbærari lausnum fyrir viðskiptavini, starfsfólk og samfélagið.

Við erum stolt af þessum áfanga og þökkum starfsfólki okkar fyrir þann metnað og fagmennsku sem liggur að baki.

Á myndinni f.v. má sjá Ester Öldu Bragadóttur frá UST, Bryndísi Hauksdóttur og Rúnar Ágúst Svavarsson fyrir hönd Hreint við móttöku Svansvottunarinnar.