Fréttir

Heilsudagur í Hreint

Hreint ehf.

Hreint ehf.

12. september 2013

Heilsudagurinn 2013 var í dag haldinn í Hreint þar sem öllu starfsfólkinu var boðið uppá heilsutengda dagskrá. Mikill fjöldi starfsmanna mætti og naut þess sem í boði var.

Það hefur verið til siðs hjá Hreint í gegnum árin að ljúka sumri og bjóða haustið velkomið með einhverskonar viðburði. Í þetta skiptið var blásið til Heilsudags.

Dagskráin var í sjálfum sér einföld þ.e. ráðgjöf hjúkrunarfræðinga og hlaðborð af heilsutengdum veitingum. Í ráðgjöfinni var boðið upp á mælingu blóðþrýsings og einfalda blóðprufu. Á hlaðboðrinu mátti t.d. finna ýmsa heilsudrykki, vefjur, ávexti, hnetur og heilsusamlokur.

Óhætt er að segja að Heilsudagurinn hafi hitt í mark og margir tugir starfsmanna leituðu til hjúkrunarfræðingana auk þess að veitingunum voru gerð góð skil.

Heilsudagur Hreint 2013 var haldinn í samstarfi fyrirtækisins og starfsmannafélags Hreint en heilsuveitingarnar góðu komu frá Bergson mathúsi í Templarasundi.