Jólasveinninn kom og færði börnum smá gjafir
Fréttir

Hátíðarstemning á jólakaffi Hreint

Starfsmenn Hreint og fjölskyldur þeirra fjölmenntu í árlegt jólakaffi Hreint sem haldið var nýverið. Boðið var upp á glæsilegt kaffihlaðborð og jólasveinninn kom auðvitað í heimsókn, söng og dansaði í kringum jólatréð með börnunum og gaf þeim gjafir.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

16. desember 2022

Starfsmenn Hreint og fjölskyldur þeirra fjölmenntu í árlegt jólakaffi Hreint sem haldið var nýverið. Boðið var upp á glæsilegt kaffihlaðborð og jólasveinninn kom auðvitað í heimsókn, söng og dansaði í kringum jólatréð með börnunum og gaf þeim gjafir. Líkt og venja er á jólakaffi Hreint voru starfsaldursviðurkenningar veittar og jólagjafir til starfsfólks afhentar.

 

Við hjá Hreint vonum að allir starfsmenn hafi átt góðar stundir og farið heim með ljúfar minningar úr jólakaffinu.