Fréttir

Hagkvæmari rekstur og betri þrif

Það er hægt að ná fram lægri rekstrarkostnaði og aukinni skilvirkni með endurmati á framkvæmd ræstinga.

Ræstingar eru í raun ferli sem má fínstilla eins og allt annað í rekstri. Með réttu skipulagi og snjallari framkvæmd nærðu betri niðurstöðu í hreinlæti og dregur um leið úr óþarfa vinnu og útgjöldum.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

16. mars 2026

Af hverju að endurmeta ræstingar?

Þegar ræstingar eru endurmetnar með ferskum augum kemur oft í ljós að verkefni, tíðni og aðferðir hafa þróast með tímanum án þess að einhver hafi stoppað og spurt: Er þetta besta leiðin í dag?

  • Lægri rekstrarkostnaður: betri nýting á vinnustundum,rétt tíðni á svæðum, bestu tækin og efnin.
  • Aukin skilvirkni: rétt verk á réttum stað á réttum tíma.
  • Betra hreinlæti með stöðugum gæðum: skýr viðmið og eftirlit sem styður stöðuga frammistöðu.
  • Gagnsæi: skýr mynd af núverandi stöðu og hvað er raunverulega bakvið kostnaðinn.

Hvað gerir Hreint í málinu?

Við forum yfir núverandi skipulag, framkvæmd og rýnum í kostnaðarþætti með það að markmiði að lækka útgjöld án þess að slaka á kröfum um hreinlæti. Útkoman er skýr mynd af stöðunni í dag og þeim tækifærum sem felast í breytingum.

Við byrjum á að skoða rými, notkun og kröfur, yfirförum verkáætlun og tíðni og rýnum í helstu kostnaðarliði: vinnustundir, tækjanotkun, efni og skipulag. Síðan leggjum við fram skýrar, framkvæmanlegar tillögur og hjálpum til við innleiðingu og eftirfylgni svo breytingarnar skili sér í raun.

Umhverfisvæn og snjöll ræsting: minni sóun, meiri stjórn

Þegar markmiðið er hagkvæmari rekstur er sjálfbærni ekki „auka-verkefni“ heldur oft einfaldlega betri aðferð. Snjallari ræsting felst í að vinna eftir gögnum, forgangsröðun og réttri tækni, í stað þess að keyra allt á sama hátt alla daga.

Í framkvæmd getur þetta þýtt markvissari verkstýringu (svæðaskiptingu eftir notkun), betra efnaval og skömmtun til að minnka sóun, og gæðaviðmið sem gera árangur sýnilegan. Niðurstaðan er einföld: meiri stjórn og betri nýting með minni umhverfisáhrifum.

Hvað færðu út úr þessu?

Þú færð skýrari mynd af stöðunni í dag, raunhæfar tillögur sem hægt er að innleiða og hagkvæmari ræstingu sem styður betra hreinlæti. Um leið eykst stjórn á framkvæmd, sóun minnkar og gæði verða stöðugri til lengri tíma.

Hafðu samband,  fáðu fría ráðgjöf og við förum yfir stöðuna með þér !