Creditinfo hefur í 15 ár metið íslensk fyrirtæki og aðeins um 2% þeirra standast strangar kröfur til að vera hluti af úrvalshópnum. Það þýðir að við erum meðal þeirra fyrirtækja sem leggja sitt af mörkum til að skapa traustan grunn fyrir íslenskt atvinnulíf og samfélagið í heild.
Framúrskarandi fyrirtæki byggja á sterkum stoðum, hafa stöðugan rekstur og efla hag allra sem koma að þeim. Vissulega eru kröfurnar strangar en það er okkar markmið að standa undir þeim – og gera enn betur!
Við erum staðráðin í að halda áfram á þessari braut, hvort sem það er í þjónustu og samskiptum við viðskiptavini okkar, samskiptum við okkar frábæra starfsfólk, eða með hagkvæmum rekstri fyrirtækisins.