Fréttir

Framúrskarandi annað árið í röð

Hreint hefur verið valið framúrskarandi fyrirtæki að mati Credit info annað árið í röð. Til þess að vera valið framúrskarandi fyrirtæki þarf fyrirtækið að uppfylla ströng skilyrði sem Hreint gerði með glæsibrag. Ríflega 35.000 fyrirtæki eru skráð á Íslandi en aðeins 624 fyrirtæki stóðust styrkleikamat Creditinfo og teljast því vera Framúrskarandi fyrirtæki 2016.

Hreint ehf.

Hreint ehf.

26. janúar 2017

Hreint hefur verið valið framúrskarandi fyrirtæki að mati Credit info annað árið í röð. Til þess að vera valið framúrskarandi fyrirtæki þarf fyrirtækið að uppfylla ströng skilyrði sem Hreint gerði með glæsibrag.

Ríflega 35.000 fyrirtæki eru skráð á Íslandi en aðeins 624 fyrirtæki stóðust styrkleikamat Creditinfo og teljast því vera Framúrskarandi fyrirtæki 2016.

Hreint ehf. ræstingafyrirtæki hefur þjónað viðskiptavinum sínum í meira en 30 ár með áherslu á vottaða vinnuferla með frábærum árangri. Við höfum unnið með gæðahugtakið í 30 ár. Fagmennska Hreint er byggð á góðu aðgengi, góðum mannlegum samskiptum, hagræðingu og notagildi fyrir hvern einstakan viðskiptavin.

Með staðfestingu á lista Credit Info yfir framúrskarandi fyrirtæki sýnum við í verki að við erum traust félag með sterkar rætur. Það er starfsfólk Hreint sem á mestan heiðurinn af árangri fyrirtækisins, enda eru starfsmenn okkar andlit fyrirtækis okkar út á við og inni á vinnustöðum viðskiptavina okkar. Við erum stolt af starfsfólki okkar og árangri þess.

Vinnuumhverfi starfsfólks viðskiptavina er okkar stóra áhugamál – en samfélagsleg ábyrgð Hreint grundvallast á aukinni vellíðan á vinnustað. Hreint ehf. er vottað með norræna gæða- og umhverfismerkinu Svaninum.