Var haldinn í Minigarðinum í Reykjavík.
Fréttir

Frábær fjölskyldudagur Hreint

Starfsmannafélag Hreint hélt nýverið árlegan fjölskyldudag í Minigarðinum í Reykjavík.

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

6. október 2022

Árlegur fjölskyldudagur Hreint var haldinn í Minigarðinum í Reykjavík nýverið. Starfsfólk og fjölskyldur þeirra, reyndu fyrir sér 18 holu minigolfi og fengu andlitsmálun og blöðrudýr frá Blaðraranum. Á svæðinu var líka myndakassi sem vakti mikla lukku, jafnt hjá börnum sem fullorðnum og voru ófáar myndir teknar af hressu og skemmtilegu fólki í miklu stuði. Þetta var ein fjölmennasta fjölskylduhátíðin sem starfsmannafélag Hreint hefur haldið og heppnaðist hún frábærlega.