Fréttir

Ekki missa af tilboði mánaðarins!

Þó einhver hafi talið bakslag komið í vorið er birtan óskaplega falleg þessa dagana og fuglasöngurinn ómar hvarvetna. Þá er mikilvægt að sjá vel út og leyfa birtunni að njóta sín.

Hreint ehf.

Hreint ehf.

27. apríl 2017

Þó einhver hafi talið bakslag komið í vorið er birtan óskaplega falleg þessa dagana og fuglasöngurinn ómar hvarvetna. Þá er mikilvægt að sjá vel út og leyfa birtunni að njóta sín. Þá ber vel í veiði því viðskiptavinum Hreint býðst 15% afsláttur af gluggaþvotti út apríl.

Það þekkja allir hve ófrýnilegir gluggar geta verið þegar þeir eru óhreinir, ekki í síst í apríl, þegar páskasólin skín svo bjart. Hreinir og fallegir gluggar eru fyrstu kynni viðskiptavina af fyrirtækjum þegar þeir koma í heimsókn og því er mikilvægt að sýna þeim að vel er hugsað um vinnustaðinn.

Hreinir gluggar veita birtu inn á vinnustaðinn og geta sparað mikla fjármuni í rafmagnsnotkun því óþarfi er að lýsa eins og á vetrardegi þegar náttúrulega birta flæðir um vinnustaðinn . Náttúruleg birtan er líka góð fyrir andlega heilsu og gerir því ótrúlega mikið fyrir starfsandann.

Apríl er stuttur mánuður í vinnu því páskarnir taka sér mikið, en kærkomið, pláss. Pantaðu því strax og sérfræðingar Hreint koma á staðinn, meta hvað gera þarf og þvo gluggana með glæsibrag. Ekki láta saltið og rykið á gluggunum byrgja þér sýn – pantaðu gluggaþvott á afbragðsgóðum kjörum.