Gæða- og umhverfisstefna
Með þjónustu okkar stuðlum við að jákvæðu, heilsusamlegu og vistvænu vinnuumhverfi fyrir starfsfólk okkar og viðskiptavini.
Þetta gerum við með því að:
- sýna í verki hreinlæti, samskipti og skilvirkni sem eru gildi Hreint
- Veita viðskiptavinum sveigjanlega, örugga og hraða þjónustu
- Tryggja góðan og ábyrgan rekstur Hreint sem skilar arði
- Vinna markvisst að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum starfseminnar, einkum með áherslu á vistvæna efnanotkun, eldsneytisnotkun, úrgangsmál og umhverfismerktar vörur
- Upplýsa starfsfólk okkar og birgja um gæða- og umhverfisstefnu Hreint og stuðla að því að þeir starfi í samræmi við hana
- Starfa samkvæmt gæða- og umhverfisstjórnarkerfi sem uppfyllir kröfur norræna umhverfismerkisins Svansins fyrir almennar ræstingar
- Setja skýr markmið í gæða- og umhverfismálum og endurnýja þau reglulega þannig að stöðugt sé unnið að endurbótum á starfsemi Hreint