Nokkur af ráðunum sem hafa náð vinsældum eru um gagnsemi kóks og tómatsósu í þrifum. En virka þessi ráð? Hvað segja vísindin okkur?
Að nota hvítvín á rauðvínsbletti
Eitt frægasta húsráðið sem tengt er matvælum er vitaskuld að þrífa skuli rauðvínsbletti með hvítvíni. Einhverjum gæti nú þótt bruðlið yfirgengilegt en sannleikurinn er sá að ljós vínandi virkar til að deyfa litinn í þeim dekkri. Raunar er það svo að sterkara vín virkar enn betur og því er langbest að skella bara vodka á blettinn. Hvort fólk tímir því er svo annað mál.
Matarsódi og edik í niðurfallið?
Matarsódi og borðedik hafa síðustu ár notið sífellt meiri vinsælda í þrifum og margir nota efnin saman til að leysa upp stíflur og ólykt í niðurföllum. Það hefur verið deilt um gagnsemi þessa ráðs til stíflueyðingar en þó er viðurkennt að bæði efnin hafa lyktareyðandi áhrif. Við notkun efnanna myndast efnahvarf sem losar koltvísýring í gasformi sem þenst út og býr til froðu. Best er að byrja á því að hella um hálfri dollu af matarsóda í niðurfallið og fylgja svo eftir með ½-1 bolla af borðediki. Þegar þetta hefur verið gert tvisvar er gott að hella heitu vatni ofan í til þess að hreinsa maukið í burtu sem myndast.
Er hægt að fægja silfur með tómatsósu?
Áhrifavaldar hafa ekki bara bent á vínandaráðið heldur hafa þrif með tómatsósu verið sérstaklega vinsæl að undanförnu. Helst er verið að nota tómatsósu til að fægja silfur. Við mælum þó ekki með því ráðinu. Virka efnið sem hefur þau áhrif að silfrið hreinsast er acetic sýra. Þá sýru þekkjum við Íslendingar betur sem ediksýru. Ólíkt venjulegu borðediki er tómatsósa uppfull af litarefni og sætuefnum sem geta dregið að sér óhreinindi og litað silfrið. Við mælum frekar með því að edik sé notað en tómatsósa.
Á að sturta kóki í klósettið?
Mörg æðin hafa gripið um sig á samfélagsmiðlum eins og TikTok síðustu ár og eitt af því er að nota kóladrykki við klósettþrif. Í þessu tilviki er það líka sýran sem sér um þrifin – en eftir sitja litarefni auk þess sem ókosturinn við drykkinn er að hann er mjög þunnur og festist því ekki við lagnir eða klósettskálina og því þarf meira af honum til að þrífa en af venjulegum hreingerningarefnum. Svo er þetta líka ansi dýr valkostur við ræstingar miðað við salernishreinsi sem endist í mörg skipti. Við getum því ekki mælt með þessu ráði.
Kartöflur leysa upp ryð
Við viljum alls ekki skilja við lesendur á neikvæðum nótum og bendum því á eitt húsráð sem við höfum ekki enn tekið eftir á samfélagsmiðlarúntinum. Kartöflur geta leyst upp ryð. Skerðu kartöfluna í helming og nuddaðu ryðblettinn með kartöflunni. Þú munt sjá að fyrst myndast einskonar leðja en þegar þú þrífur leðjuna af er ryðið á bak og burt eins og fyrir töfra. En þetta eru engir töfrar heldur efnafræði. Ryð myndast þegar járnjón og súrefnisjón bindast saman. Oxal sýran í kartöflunni lokar járnjónunum og þannig er hægt að þrífa súrefnisjónin burt.