CCP
Starfsmenn Hreint sjá um að ræsta hér hjá okkur alla virka daga frá morgni og fram eftir degi og sjá að jafnaði tveir starfsmenn um það og skipta með sér deginum. Eins og gengur hafa komið upp mál sem þarf að leysa úr og hefur starfsfólk Hreint brugðist vel við og verið viljugt og samstarfsfúst að leysa úr málum. Ræstingastjóri Hreint sér þá um að ræða við sitt fólk og um leið halda þannig yfirsýn sinni yfir verkefnið. Samskiptin eru einföld og þægileg og það skiptir líka miklu máli.