Fréttir

Vallý ráðin sviðsstjóri þjónustusviðs Hreint

Vallý Helgadóttir hefur verið ráðin sviðsstjóri þjónustusviðs. Hlutverk hennar verður að halda utanum rekstur og þróun sviðsins, móta og efla þjónustu Hreint til viðskiptavina og styðja við starfsfólk sem sinnir þjónustunni.

 

Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

14. júní 2024

Vallý hefur víðtæka reynslu og þekkingu af rekstri og stjórnun og starfaði síðast sem forstöðumaður gæðadeildar hjá Controlant. Áður gegndi hún stöðum framkvæmdastjóra þjónustusviðs og rekstrarsviðs hjá Controlant og var forstöðumaður verkefna- og upplýsingakerfa. Vallý er með meistaragráðu í verkefnastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík, diploma í gæðastjórnun frá Endurmenntun Háskóla Íslands og B.Sc. gráðu í samskiptastjórnun frá Ithaca College í New York.

„Ég er þakklát fyrir traustið að fá að leiða öflugt teymi þjónustusviðs Hreint. Hjá Hreint starfar samheldinn hópur sem mig hlakkar til að vinna með í þeim áskorunum og tækifærum sem framundan eru. Fyrirtækið er á spennandi vegferð og saman munum við gera góða þjónustu ennþá betri,“ segir Vallý.

„Við teljum að ráðning Vallýjar til að leiða þjónustusvið fyrirtækisins sé mjög mikilvægt skref stækkunaráformum félagsins til næstu framtíðar. Nýlegur flutningur okkar í nýtt og mun stærra húsnæði til viðbótar við ráðningar Vallýar eru allt skref í þessari vegferð félagsins. Hreint hefur verið í jöfnum og stöðugum vexti undanfarin ár og gerir ráð fyrir áframhaldandi vexti. Reynsla og þekking Vallýjar mun nýtast okkur mjög vel,“ segir Ari Þórðarson, framkvæmdastjóri Hreint.