Aðeins 2% íslenskra fyrirtækja uppfylla þau ströngu skilyrði sem Creditinfo gerir til Framúrskarandi fyrirtækja. Við matið er meðal annars horft til rekstrarafkomu, fjárhagslegs styrks, stöðugleika og skilvísi í rekstri yfir þriggja ára tímabil.
Kröfurnar hafa auk þess verið hertar í ár, meðal annars með nýjum skilyrðum um kynjahlutföll í stjórnum þeirra fyrirtækja sem falla undir lög um kynjakvóta.
Góður rekstur er langhlaup
Að hljóta þessa viðurkenningu einu sinni er ánægjulegt, en að gera það tólf ár í röð er eitthvað sem við erum sérstaklega stolt af. Árangurinn endurspeglar þá áherslu sem við leggjum á traustan rekstur, góða þjónustu og langtímasambönd við viðskiptavini okkar.
Viðurkenningin er jafnframt mikilvæg staðfesting á þeirri vinnu sem starfsfólk Hreint leggur af mörkum á hverjum degi. Það er ekki sjálfgefið að halda góðum árangri ár eftir ár og fyrir það erum við þakklát.
Við þökkum starfsfólki okkar, viðskiptavinum og samstarfsaðilum kærlega fyrir þeirra þátt í þessum árangri. Við höldum ótrauð áfram!