Aðeins 5,4% íslenskra fyrirtækja uppfylla þau ströngu skilyrði sem gerð eru til fyrirmyndarfyrirtækja í rekstri. Við matið er meðal annars horft til afkomu, fjárhagslegs styrks og stöðugleika í rekstri.
Viðurkenningin er okkur mikil hvatning til að halda áfram á sömu braut. Á bak við góðan árangur stendur öflugt starfsfólk sem leggur sig fram á hverjum degi við að veita viðskiptavinum okkar góða þjónustu.
Við þökkum starfsfólki okkar og viðskiptavinum kærlega fyrir þeirra þátt í árangrinum!