Viðurkenningin var afhent við hátíðlega athöfn í Háskóla Íslands þann 14. október. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem hefur það að markmiði að jafna hlutfall kynja í efsta lagi stjórnunar fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga. Viðurkenninguna hljóta þeir þátttakendur sem náð hafa markmiðinu um að hlutfall hvors kyns sé að lágmarki 40%.
Jafnrétti er hluti af okkar starfsemi
Hjá Hreint höfum við lengi lagt áherslu á jafnrétti, sanngirni og jöfn tækifæri starfsfólks. Við höfum verið jafnlaunavottað fyrirtæki frá árinu 2021 og konur eru í meirihluta bæði í framkvæmdaráði okkar og meðal millistjórnenda.
Við trúum því að fjölbreyttur mannauður, ólík sjónarmið og reynsla styrki bæði vinnustaðinn og þær ákvarðanir sem við tökum.
Það er okkur því sérstakt ánægjuefni að hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar annað árið í röð. Hún er jafnframt hvatning til að halda áfram að skapa vinnustað þar sem öll hafa tækifæri til að vaxa og ná árangri.
Við þökkum Jafnvægisvoginni fyrir viðurkenninguna og starfsfólkinu okkar fyrir að leggja sitt af mörkum til að gera Hreint að góðum og fjölbreyttum vinnustað.
Ari Þórðarson og Kristín Dögg Höskuldsdóttir tóku á móti viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA fyrir hönd Hreint við hátíðlega athöfn árið 2026.