Fréttir

Haustið byrjar á hreinu vinnuumhverfi

Fyrir mörg fyrirtæki er sumarið rólegasti tími ársins. Starfsfólk er í sumarfríi, færri eru á vinnustaðnum og daglegt álag á húsnæði minnkar. Þetta skapar kjörið tækifæri til að sinna þeim verkefnum og viðhaldi sem erfitt getur verið að framkvæma þegar starfsemin er í fullum gangi.
Rúnar Svavarsson

Rúnar Svavarsson

30. júní 2026

Tækifærin í sumrinu

Þegar umsvif í húsnæðinu minnka yfir sumarmánuðina velja margir viðskiptavinir okkar að nýta tímann til að endurnýja og bæta vinnuumhverfið. Með því að sinna viðhaldi á þessum tíma má lágmarka truflun á starfsemi og tryggja að húsnæðið sé tilbúið fyrir annasamari mánuði haustsins.

 

Gólfin segja sína sögu

Gólfefni eru meðal þeirra þátta sem verða fyrir mestu álagi í atvinnuhúsnæði. Reglulegt viðhald þeirra hjálpar til við að lengja endingartíma, varðveita útlit og draga úr kostnaði til lengri tíma litið.

Sérfræðingar okkar framkvæma ástandsskoðun og leggja mat á hvaða aðgerðir henta best hverju sinni. Í sumum tilfellum nægir grunnhreinsun og bónun en annars staðar getur verið hagkvæmt að fara í umfangsmeira viðhald áður en slit verður sýnilegt.

Umhverfi og gæði í fyrirrúmi

Hreint og vel við haldið húsnæði skapar jákvæða upplifun fyrir starfsfólk og gesti. Það stuðlar að snyrtilegra vinnuumhverfi, einfaldar dagleg þrif og hjálpar fyrirtækjum að viðhalda verðmæti fasteigna sinna.

Þess vegna mælum við með að fyrirtæki nýti sumarið til að fara yfir ástand húsnæðisins og vinna þau verkefni sem erfitt er að sinna á öðrum árstímum.