Í gegnum árin hafa á annað hundrað viðurkenningar verið afhentar, sem endurspeglar þann sterka og reynslumikla mannauð sem byggður hefur verið upp. Viðurkenningarnar eru tákn um þakklæti fyrir tryggð, fagmennsku og mikilvægt framlag til starfseminnar.
Núna í ár fengu sjö starfsmenn viðurkenningar fyrir 5 og 10 ára starfsaldurs. Á bak við daglegt starf stendur öflugt teymi og er sérstaklega ánægjulegt að fá tækifæri til að heiðra þá starfsmenn sem hafa lagt sitt af mörkum í gegnum árin.
Viðurkenningarhöfum er færðar innilegar þakkir fyrir samstarfið og framlagið í gegnum árin.
Á myndinni má sjá Tomasz Jagusiak, lagerstjóra, taka við viðurkenningu fyrir 10 ára starfsaldur, frá Ara Þórðarsyni, framkvæmdastjóra og Kristínu Dögg Höskuldsdóttur, sviðsstjóra mannauðssviðs.