Fréttir

Samstarf um sjálfvirknivæðingu gólfræstinga

Hreint ehf.

Hreint ehf.

1. apríl 2016

Samið hefur verið um að ræstingaróbótar verði notaðir til gólfræstinga á Öldrunarheimili Akureyrar í sérstöku tilraunaverkefni með þessa nýju tækni. Skrifað var undir samning á milli Öldrunarheimilisins og Hreint nýverið um verkefnið. Tilgangur þess er að auka sjálfvirknivæðingu gólfræstinga og þar með lækka kostnað við ræstingar og bæta árangur þeirra.

Með verkefninu halda Hreint og Öldrunarheimili Akureyrar áfram farsælu og góðu samstarfi sem staðið hefur undanfarin ár. Halldór Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, og Ari Þórðarson, framkvæmdastjóri Hreint, undirrituðu samninginn á Akureyri þann 18. mars síðastliðinn.

Samkvæmt samningnum verða í fyrstu gerðar prófanir á ryksuguróbótum á opnum svæðum og í herbergjum í Hlíð og Lögmannshlíð. Prófanir eru nú þegar hafnar. Síðar á árinu hefjast prófanir á stærri róbótum til gólfræstinga með nýrri tækni. Þá verða gerðar prófanir á annarskonar tækni á næsta ári sem gæti leitt til betri árangurs af sjálfvirknivæðingu við ræstingar, og þar með aukins hagræðis.

Fram kemur í samningnum að Hreint muni sjá um reglulegar ræstingar á húsnæði Öldrunarheimila Akureyrar og um verklegar tilraunir með sjálfvirknivæðingu gólfræstinganna auk þess að fjárfesta í róbótum og tækjum. Öldrunarheimili Akureyrar leggja til húsnæði og styðja við verkefnið á ýmsan hátt með vinnuframlagi, kynningu og upplýsingamiðlun.